Hugi Þórðarson
Hugi Thordarson
Violated
fimmtudagur 17. janúar 2008
Kæra dagbók.
Í dag fór ég til voða góðs læknis. Hann fór í gúmmíhanska og þreifaði á blöðruhálskirtlinum í mér.
Í kvöld ætla ég að fara einn í kalda sturtu, leggjast á sturtugólfið, sjúga á mér þumalinn og gráta aðeins. Það er stundum svo hreinsandi að gráta aðeins.
Tjáskipti
09:44 föstudagur 18. janúar 2008
Takk Syngbjörg *sniff*. En þessi lífsreynsla gerði mig að betri manni. Læknirinn opnaði með fingrum sínum fyrir orð Guðs og í gærkvöldi talaði Hann í fyrsta skipti til mín gegnum blöðruhálskirtilinn. Núna heiti ég "Sjabúbú Almóðir" - og hefur aldrei leiðið betur.
10:04 föstudagur 18. janúar 2008
Miss G - svona í í fúlustu, þá var svo gaman í Kringlunni að við nágranninn vorum hreinlega rekin út eftir lokun. (!)
En Guð í Blöðruhálskirtlinum hefur sagt mér að Kringlan sé uppspretta alls ills - þar dýrkar fólk heiðingjaguðinn Útsöl.
En Guð í Blöðruhálskirtlinum hefur sagt mér að Kringlan sé uppspretta alls ills - þar dýrkar fólk heiðingjaguðinn Útsöl.
23:25 föstudagur 18. janúar 2008
Fer ég rétt með að þú hafir borgað einhverjum fyrir að stinga höndinni á sér inn í pípulagnirnar á þér?
21:20 laugardagur 19. janúar 2008
Við konurnar þurfum að þola álíka persónulega invasjón með reglulegu millibili- n.b. til að halda heilsu - og þá erum við að tala um óaðlaðandi fótstöðu með inngripi einhvers stál UFO-i sem rekið er upp í prívatið ásamt þukli á brjóstum og eyrnapinnapoti. Sorry, enginn vorkunn hér. Bíddu þar til þú fæðir börn kallinn!!
21:53 laugardagur 19. janúar 2008
Já Hugi, bíddu bara, það á eftir að verða sársaukafyllra en þig órar fyrir...:-)
Mjása
19:18 föstudagur 25. janúar 2008
Hér er smá til að lina sársaukann: http://www.youtube.com/watch?v=jH8gtrD4_C4&feature=related
11:52 sunnudagur 27. janúar 2008
Miss G!? Þröngt og stutt? Þá... föt? *hóst*
Syngibjörg, já, mikill er máttur lækna. Veit ekki með dáleiðsluna þó.
Pedro, jújú, sekur. Hann fór þó ekki alveg með alla *höndina*. Til hvaða skaðræðislæknis ferð þú eiginlega!!?
Og Linda - *ég* er að vorkenna mér hérna, vorkenndu þér í þínum eigin frítíma!
Pedro - viltu vera guðfaðir fyrir litla kraftaverkið mitt? - fyrsta sveinfæðingin.
Mjása, snilldarlag! En þýskan er alveg rosalega illa textuð.

12:17 sunnudagur 27. janúar 2008
Ananrs hef ég með aðstoð læknisfræðinnar náð að skilja blöðruhálskirtilinn mun betur.
http://www.buyamag.com/prostate_vasectomy.php
http://www.buyamag.com/prostate_vasectomy.php
11:01 mánudagur 28. janúar 2008
Hugi, ættir nú að nota tækifærið til að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum það er aldrei að vita hvaða dyr það mun opna fyrir þér.

Tjáðu þig