Sætkartöflusúpa
Innihald
- Ólífuolía
- 1 laukur, saxaður
- 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
- 1 msk söxuð engiferrót
- 1 tsk möluð kóríanderfræ
- 700g sætar kartöflur, afhýddar og skornar í sneiðar
- 1 lítri grænmetissoð
- 2dl kókosmjólk
- 1 msk tómatmauk
- Lárviðarlauf
- Sjávarsalt
- Timían
- Svartur pipar
Aðferð
- Laukur, hvítlaukur, engifer, kóríander og sætar kartöflur steikt saman í olíunni
- Soð og kókosmjólk sett út í og soðið í 20-30 mínútur
- Súpan maukuð í matvinnsluvél
- Timían, lárviðarlauf og tómatmauk sett saman við og smakkað til með salti og pipar.
