Kjúklingasúpa
Innihald
- Tómatur eða fjórir
- Laukur eða tveir eða þrír
- Púrru, jafnvel tvær
- 2 sellerístöngla
- 3-4 lárviðarlauf
- Fersk steinselja er góð líka
- Nokkur svört piparkorn
- Smá karrý eða kúmín, ef þú sért í stuði, jafnvel smá fínsaxaður ferskur chili
Aðferð
- Skelltu öllu í risastóran pott. Þú þarft ekki að afhýða eða skera grænmetið.
- Settu nóg vatn í pottinn til að kaffæra fuglinn. Þú gætir þurft að bæta vatni í pottinn meðan súpan sýður.
- Náðu upp suðu á súpunni og lækkaðu svo undir henni þannig að suðan haldist við en hljómi þægilega rólega og afslappandi.
- Láttu malla í tvo tíma og hrærðu í öðru hvoru. Eftir klukkutíma ilmar eldhúsið dásamlega.
- Síaðu súpuna og hentu grænmetinu, það hefur þjónað sínum tilgangi.
- Hreinsaðu kjötið af kjúklingnum og settu það í súpuna.
Það er hægt að gera súpuna matarmeiri með því að bæta í hana núðlum eða sveppum áður en hún er borin fram. Eða hverju sem er, láttu bara hugmyndaflugið ráða ferðinni.
